Um hamingjuna

Fann þetta á blogginu hjá gamalli vinkonu tja hún er jafgömul og ég en langt síðan ég hitti hana síðast og fann hana á blog.is hehe. Ég hef lesið þetta áður og það er svo mikið til í þessu og ég hugsa oft svona en eftir að ég flutti hingað út hefur mér gengið betur að fylgja þessu þó ég eigi enn langt í land.

Við teljum okkur trú um að lífið verði betra eftir að við:
göngum í hjónaband, eignumst barn og síðan þegar við eignumst annað barn.
Síðan verðum við ómöguleg yfir því að börnin eru enn svo ung og teljum að við verðum miklu ánægðari er þau eldast. 
Þegar það gerist verðum við pirruð á því að þurfa að takast á við unglingana okkar og teljum okkur verða ánægðari þegar þeir vaxa upp úr því aldursskeiði.
 
Við teljum okkur trú um að við munum öðlast meiri lífsfyllingu loksins þegar:
maki okkar tekur sig taki, þegar við fáum betri bíl, þegar við komumst í almennilegt frí eða þegar við setjumst í helgan stein.

Sannleikurinn er sá að það er ekki til betri tími til að verða hamingjusamur heldur en einmitt núna!…....... Því ef ekki núna..... hvenær þá?
Lífið er alltaf fullt af vandamálum. Það er best að horfast í augu við það og ákveða að vera hamingusamur þrátt fyrir það.

Alfred D. Souza sagði eitt sinn:  “Lengi vel fannst mér alltaf sem lífið væri rétt að byrja – þetta eina sanna líf. En það var alltaf eitthvað sem stóð í vegi fyrir því, eitthvað sem þurfti að yfirstíga fyrst, einhver ókláruð mál, tími sem þurfti að eyða í eitthvað, ógreiddar skuldir. Síðan myndi lífið byrja.
Dag einn rann það upp fyrir mér að allar þessar hindranir voru lífið sjálft.”  Þetta viðhorf hjálpar okkur að skilja að það er engin leið að hamingjunni.  Hamingjan er leiðin. 

Njótum hverrar stundar sem við eigum. Njótum hennar enn frekar þegar okkur tekst að deila henni með öðrum sem er nógu sérstakur til að verja tíma okkar með … og munum, að tíminn bíður ekki eftir neinum.

Áttu að bíða þar til þú hefur lokið námi eða þar til þú hefur hafið nám, þar til þú hefur misst fimm kíló eða bætt á þig fimm kílóum, þar til þú hefur eignast börn eða þar til þau flytjast að heiman, þar til þú byrjar að vinna eða þar til þú sest í helgan stein, þar til þú giftist eða þar til þú skilur, þar til á föstudagskvöld, þar til á sunnudagsmorgun, þar til þú færð þér nýjan bíl eða hús, þar til þú hefur borgað upp bílinn eða húsið, þar til í vor, þar til í sumar, þar til í haust, þar til í vetur, þar til lagið þitt byrjar, þar til þú ert búin að fá þér í glas, þar til runnið er af þér, þar til þú deyrð, þar til þú fæðist á ný … til þess eins að ákveða að það er enginn tími betri til að vera hamingjusamur en einmitt núna!  

Hamingjan er ferðalag ekki áfangastaður !!

Til umhugsunar að lokum!

“Sinntu starfi þínu eins og þú þarfnist ekki peninganna.”
“Elskaðu eins og þú hafir aldrei verið særð(ur).”
“Dansaðu eins og enginn sjái til þín.”

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Íris

Margt til í þessu!

Íris, 8.3.2007 kl. 21:49

2 identicon

Já þetta er svo rétt.

Knús og kveðja

Vigga

Vigdís Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 8.3.2007 kl. 23:20

3 Smámynd: Sigga

þetta er málið sko! fólk heldur oft að grasið sé grænna hinumegin o.s.frv.

Sigga, 9.3.2007 kl. 10:01

4 identicon

Ég þurfti einmitt á því að halda að lesa einhverja svona speki núna, þegar ég er að vorkenna mér út af einhverju sem skiptir engu máli, eins og endalausra þrifa og okurs iðnaðarmanna! Maður þarf að láta sparka í sig stundum og njóta þess sem maður hefur!! Takk fyrir þetta

Sæfinna Ásbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 9.3.2007 kl. 11:30

5 Smámynd: andrea marta vigfúsdóttir

Nákvæmlega...

andrea marta vigfúsdóttir, 9.3.2007 kl. 15:16

6 Smámynd: Gerða Kristjáns

Sæl vinkona

Sá kveðjuna frá þér í gær í gestabókinni og þótti alveg frábært   Kíkti með því sama á heimasíðu barna þinna og sendi póst með beiðni um lykilorð.  Það hefur ss. ekki borist þér ?  Þetta eru algjörir gullmolar sem þú átt, til hamingju með allt saman

Hahahaha óskorið fransbrauð já........með smurosti í litlu dollunum kannski ?

Endilega verum í bandi, emailið mitt er gerda@simnet.is

Gerða Kristjáns, 10.3.2007 kl. 00:28

7 identicon

Vá, þetta er um það bil mesta speki sem ég hef lesið! Ég er viss um að 98% Íslendinga hugsa svona! ... þar á meðal ég  

Jólastrympa (IP-tala skráð) 10.3.2007 kl. 10:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband