Blessaður hitakúturinn minn !!!

Jæja hann er orðinn fastagestur blessaður rafvirkinn sem er búin að skipta um allt rafmagnið í kútnum. Hann virkaði sem sagt í nokkra kltima á föst rétt svo allir gætu þrifið sig. Á laugardaginn var það aftur farið og ekki náðist í blessaðan dúddann ekkert hægt að strjúka honum um skallann. Svo þá var bara hitað eina ferðina enn á öllum hellum í þrígang á svo litla potta sjáiðtil. Því krakkarnir fóru í klippingu og voru öll í hárum svo það var alveg nauðsynlegt.

Nú var hann að koma, dúddinn sko, og sýndi mér einhvern lítinn titt sem ég þarf að ýta á það er allt og sumt nú þarf ég bara að vera dugleg að fylgjast með að ljósið logi á blessuðum kútnum, og titturinn á sínum stað Shocking

Ég hinsvegar fór í kraftgöngu með Lindu vinkonu í morgun mega duglegar fórum alla ströndina fram og til baka sem gerir 5 km. Stoppuðum í ræktinni minni sem er þar og ég skaust í sturtu þar sem ég var ekki að treysta á að ég fengi sturtu heima í dag og Linda fékk sér morgunmat á kaffihúsinu sem er þar, ferlega notalegt kaffihús það, með útsýni yfir alla ströndina. Að sjálfsögðu kom ég eftir sturtuna og fékk mér morgunmat líka. Ætlum aftur á morgun en tímum ekki morgunmat á hverjum degi kostar heilar 350kr ristabrauð kaffi og nýpressaður appelsínudjús sem er sko morðfjár hér, en þú borgar fyrir útsýnið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: andrea marta vigfúsdóttir

Jæja, það er nú gott að fjölskyldan getur aftur þrifið sig! :) ohhh.. ganga eftir ströndinni...líkamsræktarstöð á ströndinni.. Jess.. bráðum get ég sagt svona sögur líka!!!

andrea marta vigfúsdóttir, 19.3.2007 kl. 12:57

2 Smámynd: Sigga

dugnaður í þér kona...dííí..þetta virðist ætla að vera sama sagan og með minn hitakút...hugsa til þin xxx

Sigga, 19.3.2007 kl. 13:28

3 Smámynd: Íris

Hehe, íslendingurinn og gas, jæja, var þetta líka vandinn hjá þér sigga?
Gangi þér vel í kraftgöngunni ég fer líka allllllllveg að byrja að hreifa mig, hehe.

Íris, 19.3.2007 kl. 13:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband